Lög félagsins
1.gr
Félagið heitir Félag hundaeigenda á Akureyri (FHA).
2.gr
Heimili félagsins og varnarþing er það sama og heimilisfang formanns stjórnar hverju sinni, þó alltaf innan póstnúmers 600-606 á Akureyri, og felst samþykkt á því fyrirkomulagi í framboði og kosningu til stjórnarformennsku.
3.gr
Tilgangur félagsins er að vinna að bættum hag hunda og hundaeigenda á Akureyri, efla félagsmenn til hreyfingar og afþreyingar með hundum í samfélaginu og miðla fræðslu.
4.gr
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:
5.gr
Stofnfélagar:
Anna Kristrún Sigurpálsdóttir
Sigurveig Jenný Ragnarsdóttir
Benedikt Þórisson
Jón R. Trampe
Ute Stelly
Þórdís Linda Dúadóttir
Brynjar Zóphoníasson
Jean Cambray
Orri Torfason
Ragnheiður Torfadóttir
Unnur Björk Snorradóttir
Lilja Þorkelsdóttir
Sigfús Bjargarson
Líney Elíasdóttir
Gunnar Hansen
Guðrún Vaka
Ómar Ólafsson
Áki Áskelsson
Þorbjörg Jónsdóttir
Sonja Dröfn Helgadóttir
Guðmundur Egill Erlendsson
Inger Jensen
Óli Berg Kristdórsson
Jón Björnsson
Sonja Stelly Gústafsdóttir
6.gr
Félagsmenn geta allir þeir orðið sem áhuga hafa á málefnum FHA, hvort sem þeir eiga hund eða ekki. Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir fundarmenn sem náð hafa 18 ára aldri og hafa greitt félagsgjöld á yfirstandandi starfsári og einnig nýjir félagar sem staðfesta félagsaðild sína með undirritun á aðalfundi og greiða félagsgjald á staðnum. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og berast stjórn félagsins.
7.gr
Stjórn félagsins skal skipuð sjö virkum stjórnarmönnum þ.e. formanni, varaformanni, ritara og gjaldkeri auk eins meðstjórnenda. Einnig skal kjósa tvo varamenn sem hafa það hlutverk að leysa stjórnarmenn af í forföllum. Varamenn hafa rétt til að sitja alla stjórnarfundi en hafa ekki atkvæðarétt á þeim nema að sitja í umboði stjórnarmanns. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Endurkjör er leyfilegt. Miða skal að því að alltaf sitji a.m.k. tveir stjórnarmenn áfram við næstu kosningar. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir en að öðru leyti eru allir stjórnarmenn jafn réttháir í atkvæðagreiðslum eða afgreiðslu mála í stjórninni.
Stjórnarmenn skulu sitja að lágmarki 80% af settum stjórnarfundum.
Framboð til stjórnarsetu þurfa að berast tveimur sólahringum fyrir aðalfund.
Ef ekki berst tilskilinn fjöldi framboða til að manna stjórn skal vera heimilt að bjóða sig fram á aðalfundi en eingöngu ef þess þarf.
8.gr
Stjórn FHA fer með málefni félagsins milli félagsfunda. Daglega umsjón félagsins annast stjórnarmenn í sameiningu og með samkomulagi sín á milli. Meirihluti stjórnar skuldbindur félagið. Gerðir stjórnar skulu bókfærðar.
Stjórn skal auk þess sem kveðið er á um í lögum þessum:
Félagsfundi skal halda:
9.gr
Aðalfund skal halda fyrsta þriðjudag í febrúar ár hvert. Fundinn skal auglýsa með a.m.k. 7 daga fyrirvara. Allir fullgildir félagsmenn 18 ára og eldri, sem mættir eru á fundinn, hafa atkvæðarétt skv. 6. gr., málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins. Kosningar á aðalfundi skulu vera leynilegar með kjörseðlum sem fundarstjóri úthlutar. Fundarstjóri setur að öðru leyti reglur um kosningar á aðalfundi.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Stjórn skal kosin skriflega, nema aðeins komi fram ein uppástunga til stjórnarstarfs, þá er sá sem tilnefndur er sjálfkjörinn. Ef atkvæði eru jöfn skal kosið að nýju, bundinni kosningu og fáist enn ekki úrslit, ræður hlutkesti. Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald í öllum málum þess.
10.gr
Reikningar félagsins skulu miðast við almannaksárið. Árgjald félagsins skal ákveðið árlega á aðalfundi og rennur það í aðalsjóð félagsins. Aðalfundur tekur ákvörðun um árgjald næsta árs. Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í að greiða niður kostnað næsta rekstrarárs. Félagsgjöld skulu taka mið af því einu að félagið geti rekið sig ár frá ári en félagið má eiga sjóð sem nýta má í málefni tengdum hundum sem ákveðin eru af sitjandi stjórn hverju sinni . Við inngöngu nýrra félaga skal innheimta árgjald.
11.gr
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með ¾ hluta greiddra atkvæða um tillögu þess efnis og renna eignir þess við slit ef einhverjar eru til Dýrahjálpar Íslands eða ráðuneytis landbúnaðarmála hafi Dýrahjálp Íslands verið slitið ef og þegar til slíks kemur.
12.gr
Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi og þarf til þess samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna. Allir félagsmenn geta lagt fram lagabreytingartillögu og skal tillagan, ásamt rökstuðningi, berast skriflega (bréfpóstur eða tölvupóstur) til stjórnar FHA í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir aðalfund.
13.gr
Breytingar á lögum félagsins öðlast gildi samstundis, þ.e. um leið og aðalfundur hefur samþykkt breytingar sem bornar hafa verið upp og kosið um.
______________________________________________________________________________________________
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi félagsins í febrúar 2020 og öðlast gildi í lok hans.
Akureyri 11.02.2020.
Síðast uppfært 10. mars 2020

- Halda uppi reglubundnum viðburðum þar sem hundar og menn koma saman til að efla félagslega þörf hunda, hreyfingu og afþreyingu
- Halda úti fræðslu- og tengslavef fyrir félagsmenn og annað áhugafólk um hunda, hundahald og tengd málefni.
- Fylgjast með því að yfirvöld virði rétt hunda og hundeigenda og knýja á um úrbætur í þeim efnum.
5.gr
Stofnfélagar:
Anna Kristrún Sigurpálsdóttir
Sigurveig Jenný Ragnarsdóttir
Benedikt Þórisson
Jón R. Trampe
Ute Stelly
Þórdís Linda Dúadóttir
Brynjar Zóphoníasson
Jean Cambray
Orri Torfason
Ragnheiður Torfadóttir
Unnur Björk Snorradóttir
Lilja Þorkelsdóttir
Sigfús Bjargarson
Líney Elíasdóttir
Gunnar Hansen
Guðrún Vaka
Ómar Ólafsson
Áki Áskelsson
Þorbjörg Jónsdóttir
Sonja Dröfn Helgadóttir
Guðmundur Egill Erlendsson
Inger Jensen
Óli Berg Kristdórsson
Jón Björnsson
Sonja Stelly Gústafsdóttir
6.gr
Félagsmenn geta allir þeir orðið sem áhuga hafa á málefnum FHA, hvort sem þeir eiga hund eða ekki. Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir fundarmenn sem náð hafa 18 ára aldri og hafa greitt félagsgjöld á yfirstandandi starfsári og einnig nýjir félagar sem staðfesta félagsaðild sína með undirritun á aðalfundi og greiða félagsgjald á staðnum. Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og berast stjórn félagsins.
7.gr
Stjórn félagsins skal skipuð sjö virkum stjórnarmönnum þ.e. formanni, varaformanni, ritara og gjaldkeri auk eins meðstjórnenda. Einnig skal kjósa tvo varamenn sem hafa það hlutverk að leysa stjórnarmenn af í forföllum. Varamenn hafa rétt til að sitja alla stjórnarfundi en hafa ekki atkvæðarétt á þeim nema að sitja í umboði stjórnarmanns. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Endurkjör er leyfilegt. Miða skal að því að alltaf sitji a.m.k. tveir stjórnarmenn áfram við næstu kosningar. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir en að öðru leyti eru allir stjórnarmenn jafn réttháir í atkvæðagreiðslum eða afgreiðslu mála í stjórninni.
Stjórnarmenn skulu sitja að lágmarki 80% af settum stjórnarfundum.
Framboð til stjórnarsetu þurfa að berast tveimur sólahringum fyrir aðalfund.
Ef ekki berst tilskilinn fjöldi framboða til að manna stjórn skal vera heimilt að bjóða sig fram á aðalfundi en eingöngu ef þess þarf.
8.gr
Stjórn FHA fer með málefni félagsins milli félagsfunda. Daglega umsjón félagsins annast stjórnarmenn í sameiningu og með samkomulagi sín á milli. Meirihluti stjórnar skuldbindur félagið. Gerðir stjórnar skulu bókfærðar.
Stjórn skal auk þess sem kveðið er á um í lögum þessum:
- Undirbúa mál sem félagsfundur fjallar um.
- Taka til meðferðar ályktanir félagsfunda.
- Bera ábyrgð á fjárreiðum FHA.
Félagsfundi skal halda:
- Ef meira en 1/10 hluti félagsmanna óska þess.
- Ef stjórn FHA telur sérstaka ástæðu til þess. Krafa um aukafund skal vera skrifleg, stíluð á stjórn FHA og í henni skal greina frá hvaða mál fundurinn á að fjalla um. Aukafund skal halda innan 15 daga frá því að krafa berst stjórn FHA. Stjórn FHA ákveður fundartíma og fundarstað. Fundarboð vegna aukafundar skal senda í tölvupósti í síðasta lagi viku fyrir fundinn. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá fundarins og tilefni.
9.gr
Aðalfund skal halda fyrsta þriðjudag í febrúar ár hvert. Fundinn skal auglýsa með a.m.k. 7 daga fyrirvara. Allir fullgildir félagsmenn 18 ára og eldri, sem mættir eru á fundinn, hafa atkvæðarétt skv. 6. gr., málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins. Kosningar á aðalfundi skulu vera leynilegar með kjörseðlum sem fundarstjóri úthlutar. Fundarstjóri setur að öðru leyti reglur um kosningar á aðalfundi.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosinn fundarstjóri og fundarritari
- Stjórn gefur skýrslu um starfsemi á liðnu starfsári.
- Stjórn gefur skýrslu um fjárhag félagsins í heild og leggur fram endurskoðaða reikninga aðalstjórnar og félagsins í heild, svo og sjóða í vörslu félagsins.
- Lagabreytingar
- Kosning formanns FHA og annarra stjórnarmanna.
- Önnur mál.