Aðalfundur Félags hundaeigenda á Akureyri, var haldinn sal Fjölsmiðjunnar, Furuvöllum 13. klukkan 20 þann 3. febrúar síðastliðinn.
Það sem einungis voru 7 manns staddir á fundinum (að stjórn meðtalinni) var ekki talið rétt að gera stórar breytingar. Það er hins vegar gleðilegt að það tókst að fullmanna stjórn Nú eru 7 manns í stjórn og 2 í varastjórn. Hér er fyrir neðan má sjá fundargerð frá aðalfundi Félags hundaeigenda á Akureyri vegna síðasta árs. Þar er einnig skýrsla formanns.
0 Comments
Aðalfundur Félags Hundaeigenda á Akureyri verður haldinn 16. mars 2021 kl. 19:30 á Furuvöllum 13 í Fjölsmiðjunni á Akureyri. Samkvæmt lögum félagsins þarf framboð til stjórnarsetu að berast stjórn tveimur sólarhringum fyrir aðalfund, þú getur smellt á hlekkinn hér að neðan til að bjóða þig fram í stjórn félagsins. Athugið að krafa er gerð til stjórnarmanna að vera fullgildir félagar. Samkvæmt lögum félagsins þarf tillaga að lagabreytingu að berast tveimur sólarhringum fyrir aðalfund, þú getur smellt á hlekkinn hér að neðan til að senda inn tillögu að lagabreytingu. Þú getur smellt >HÉR< til að skoða núgildandi lög félagsins
Jólabingo Félags Hundaeigenda á Akureyri til styrktar Dýrahjálpar verður með breyttu sniði vegna aðstæðna í samfélaginu.
Í staðinn fyrir klassíska bingóið hefur verið ákveðið að hafa rafrænt happdrætti! Jólahappið verður haldið á facebook live kl. 17:30 þann 5. desember 2020. Skráðu þig í pottinn og fylgstu með viðburðinum á facebook, hringt verður í vinningshafa í beinni útsendingu og ef enginn svarar í símann, missir maður af vinningnum, svo það er eins gott að vera tilbúinn! 😁 Taktu þátt í þessum skemmtilega viðburði og styrktu gott málefni, því ALLUR ágóði jólahappsins rennur óskertur til Dýrahjálpar. |
Eldri fréttir
January 2024
|